Netdeild Símans 1,6 Online mót

Nú á dögunum var tilkynnt á Hugi.is/hl að hin vinsæla Netdeild Símans væri á næsta leiti og eru það félagarnir ZiRiuS og eth stjórnendur /hl sem standa að baki online keppninnar. Það eru ekki öll lið sem komast í keppnina, en skráningarfyrirkomulag er "invite" og hafa þeir Iceland.gif ZiRiuS og Iceland.gif eth nú þegar valið hvaða lið koma til með að keppa.

Lesa meira >>


Project_kr sýnir skipulagssnilli sína í pistol round í Dust2

Project_kr er án efa eitt af betri Counter Strike liðum sem uppi hafa verið. Þeirra velgengni stafar meðal annars vörnina sem þeir spila, en þeir hafa komið sér upp fjölmörg úrræði fyrir hinar og þessar aðstæður í hverju korti fyrir sig.

Lesa meira >>


Kvennadeild CS ekkert síðri en karladeildin

Kvenlega hliðin á Counter-Strike hefur ekki verið mjög áberandi á Íslandi síðan leikurinn náði þessari gríðarstórri fótfestu í íslenska leikjasamfélaginu en hefur þó verið að stækka jafnt og þétt undanfarin misseri. Á heimsvísu hefur kvennadeildin verið að stækka gífurlega og eiga margar af þessum stelpum mikla framtíð fyrir sér í atvinnu CS spilun.

Lesa meira >>


eSports.is stofnar bloggsíðu

Ný heimasíða hefur verið tekin í notkun eSports.is með yfirskriftinni "Íslenska eSports Samfélagið". Öll vinna í kringum www.esports.is er unnin í sjálfboðavinnu.  Sjálboðavinna sem við skulum styðja, þegar við viljum styrkja góð málefni. 

Það að stofna bloggsíðu esports.is hér á blog.is er einn liður í því að láta sem flesta vita af okkar göfuglega starfi í þágu leikjasamfélagsins.

Aðstandendur esports.is koma til með að setja hér inn áhugaverðar fréttir sem eru að gerast í leikjasamfélaginu, þá bæði hér á íslandi og eins á erlendri grund.

Njótið vel


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband